Kjaftæðisvaktin
Mánudaginn 13. október svarar Þórhallur Heimisson gagnrýni minni á tilgátu sem hann hefur lagt fram um uppruna landvættanna sem prýða skjaldarmerki okkar. Raunar segir hann ekkert um rök mín sem slík heldur endurtekur nær eingöngu það sem hann hefur áður sagt og skrifað.
Tilgáta Þórhalls er í stuttu máli sú að verurnar á skjaldamerki Íslands séu undir einhvers konar áhrifum frá skepnum sem koma fram í Opinberunarbókinni og voru notuð sem tákn fyrir guðspjallamennina.
Lesa Af landvættum og heimildaskráningu prestsNú í morgun var viðtal við séra Vigfús Þór Árnason, prest í Grafarvogi í þættinum Í bítið á Bylgjunni. Presturinn vék nokkrum orðum að nýlegum greinaskrifum á vantrúarvefnum en því miður átti hann erfitt með að feta veg sannleikans í þessu máli.
Aðspurður um laun presta sagði hann að þau væru "í svipuðum launaflokki og framhaldsskólakennarar, nær ekki alveg launum skólastjóra." Á vefsíðu KÍ er sameiginleg launatafla fyrir FF og FS (Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda framhaldsskóla), taflan byrjar í 230.216 og nær hæst í 597.662. Skólastjórar fá ekki greidda yfirvinnu, en kennarar geta fengið yfirvinnu þá mánuði á ári sem skólar starfa.
Lesa Séra Vigfús fer með fleipurEf orðinu „plástur“ er skipt út fyrir „drykkur“, „duft“, „mansjúríusveppur“ eða eitthvað álíka þá hljómar eftirfarandi auglýsing ansi kunnulega:
Lesa Jen Fe heilsuplásturinn er pýramídasvindlLoksins er fáanlegur á Íslandi þessi frábæri heilsuplástur. 100% náttúruleg innihaldsefni, engin aukaefni! Ef e-ð af eftirfarandi á við þig þá gætum við hjálpað þér! Þarftu að léttast, vantar þig aukna orku, viltu minnka sykurþörfina og fá jafnari blóðsykur yfir daginn, ertu með svefntruflanir, viltu koma jafnvægi á líkamsstarfsemina á heilbrigðan og náttúrulegan hátt!
Benedikta Jónsdóttir hjá Manni lifandi fer mikinn í viðtali í tölublaði Vikunnar fyrir nokkru sem rataði einnig á forsíðu dv.is. Hún fullyrðir að Mjólkursamsalan sé að matreiða eitur ofan í börn, þar sem vörurnar innihalda kemísk efni á við gervisykur. Þá fullyrðir hún líka að samskonar "diet"-vörur fiti fólk, að MSG sé að finna í flestum matvörum og sé líka baneitrað, að hvítur sykur sé bölvaldur og að matvælaiðnaðurinn sé að blekkja neytendur með því að skipta um nafn á "eitrinu".
Þetta eru þó nokkuð stór orð en koma ekki á óvart. Það er nefnilega þannig að fólk í heilsuvöru- og náttúrulækningageiranum er í krossferð mikilli gagnvart s.k. kemískum efnum, gerviefnum, rotvarnarefnum og barasta öllu sem bætt er í mat sem ekki er hægt að kalla náttúrulegt skv. einhverri undarlegri skilgreiningarbók þeirra. Er eitthvað til í þessu öllu?
Lesa Um gervisykur og heilsukukl
Fyrir stuttu varð ég fyrir þeirri reynslu að sjá þekktan Þjóðkirkjuprest mæta til embættisverka á allra flottustu útgáfu Benz-jeppa, splunkunýjum upp úr kassanum. Ekki er þessi prestur af ríkum ættum, maki hans starfar sem kennari. Eflaust þakkar presturinn guði fyrir bílinn – eða skyldi hann þakka íslensku þjóðinni sem borgar launin hans?
Það er nefnilega svo merkilegt að allir landsmenn, kaþólskir jafnt sem búddistar, trúaðir jafnt sem vantrúaðir – öll tökum við þátt í að greiða laun Benz-prestsins, þessi ofurlaun sem setur guðsorðasölumenn á stall með bankastjórum og verðbréfamiðlurum. En hvernig stendur á því að við almenningur skuli halda Benz-prestum þessa lands uppi?
Lesa Skuldum við kirkjunni pening?Í 24 stundum þann 26. september er stutt viðtal við Þórhall Heimisson prest. Í viðtalinu segist Þórhallur hafa verið að reyna í mörg ár að reyna að fá Forsætisráðuneytið til að breyta upplýsingum á heimasíðu sinni um landvættirnar á skjaldarmerki Íslands. Þórhallur segir að þessar verur sé í grunninn upprunnar úr Opinberunarbók Nýja testamentisins.
Þó Þórhallur minnist ekki á það er í raun enginn fræðilegur stuðningur við þessa kenningu hans. Ég veit ekki til þess að nokkur fræðimaður hafi tekið undir þessa tilgátu og ég veit ekki til þess að hann hafi borið hana upp á vettvangi fræðanna.
Lesa Rammheiðnar landvættirOkkar hliðræni heili er í jafnvægi þegar hann lifir í fullvissu. Þær efnahagslegu þrengingar sem nú ganga yfir landsmenn trufla okkar daglega líf með því að framkalla óvissu og kvíða. Nákvæmlega á þeim tímapunkti er mannshugurinn veikastur fyrir. Þegar nálykt óvissunnar leggur frá lýðnum hefja hrægammar sig til flugs. Þeir boða innhaldslausar lausnir vöndlaðar inní skrípapólitík fornaldar gegn því að landsmenn greiði ærlegt verndargjald til sín. PR stormsveitir ríkiskirkjunnar jafnt sem annarra safnaða hafa nú þegar yfirgefið náttstað sinn.
Lesa Hrægammar hefja sig til flugs
Fjölmiðlar hafa verið duglegir að fjalla um tekjur einstaklinga að undanförnu. Þeir hafa meira að segja tekið saman lista yfir laun bloggara til viðbótar við hefðbundnar stéttir. Einn hópur hefur samt gleymst: miðlar og aðrir hindurvitnaboðendur. Skattateymi Vantrúar fór að dæmi blaðanna í síðustu viku og skoðaði opinberar álögur nítján einstaklinga sem þekktir eru fyrir boðun hindurvitna. Einhverjir á listanum sinna annarri vinnu ásamt kuklinu. Tekjurnar eru reiknaðar út frá uppgefnum útsvarstölum í álagningarskrám í ágústbyrjun 2008. Kærufrestur stendur enn yfir og því gætu tölurnar átt eftir að breytast.

Yfirlögregluþjónninn á Höfuðborgarsvæðinu segir frá því í Fréttablaðinu í dag að lögreglan spari stórfé á því að Menningarnótt sé ekki haldin undir fullu tungli.
„Það sparar mér mikla fjármuni að það verði ekki fullt tungl á menningarnótt,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu. Hann segist lengi hafa haldið því fram að meira álag sé hjá lögreglunni þegar tunglið er fullt og því hafi hann fjölmennari vaktir þær helgar þegar svo ber undir. „Þetta sést til dæmis á því að í fyrra var menningarnótt ekki á slíkum degi og þá fór hún sérlega vel fram en árið þar áður var hún þegar það var fullt tungl og þá höfðum við í nógu að snúast.“ #Lesa Geir Jón undir fullu tungli
Í tíufréttum RÚV í fyrrakvöld (ath. tengill hættir að virka innan tíðar) sagði frá fósturdauða meðal búpenings á austurlandi og hvernig menn væru að taka á því vandamáli með því að finna og uppræta rafsegulbylgjur. Þegar fréttin byrjaði fylgdist ég spenntur með, því ég er alveg tilbúinn að trúa því að rafsegulbylgjur geti valdið skaða, um leið og færð eru fyrir því haldbær rök. Spenna mín fólst því í því að sjá hvaða aðferðir yrðu notaðar og hvaða röksemdafærsla kæmi frá rannsakendum. Ég hugsaði: "Ekki kall með spákvist, ekki kall með spákvist, plís!"
En það var auðvitað enginn vísindamaður með fullt af rökum og sönnunargögnum sem birtist á skjánum, heldur nákvæmlega sá karakter sem ég óttaðist að sjá þarna: Einyrki með spákvist.
Lesa Einyrkjar með spákvistiVið Íslendingar erum ekki kristnir menn í raunverulegri merkingu þess orðs. Við erum miklu fremur heiðingjar, einshvers konar húmanískir heiðingjar, ef svo mætti segja. Margar stoðir renna undir þessa kenningu, þótt hér verði ekki frekar um rætt. En þrátt fyrir allt höldum við jól og aðrar kirkjulegar stórhátíðir með pomp og prakt, eins og vera ber. Það er að vísu hálfgert tómahljóð í öllu þessu guðsorðaglamri -- og ef við hefðum ekki Bach og Händel, kæmumst við líklega seint eða aldrei í snertingu við fagnaðarboðskapinn á kirkjunnar vegum
Steinn Steinarr (Við opinn glugga, Reykjavík 1961 s.66-67)
Movable Type 3.20
knýr þennan vef